Forsíða / Fyrirtæki og stofnanir
RÆSTINGAR FYRIR FYRIRTÆKI OG STOFNANIR
Áreiðanleg þjónusta og
góð þrif fyrir reksturinn
Við hjá BG Ræsta sjáum um þrifin svo þú getir einbeitt þér að daglegum rekstri. Starfsfólk og viðskiptavinir njóta snyrtilegs húsnæðis og þú færð þjónustu sem tekur mið af þörfum vinnustaðarins.
Fá tilboð í ræstinguGott vinnuumhverfi hefst á hreinlæti
Við aðlögum þrifin að notkun hvers svæðis og leggjum áherslu á að starfsfólk og viðskiptavinir mæti í hreint og snyrtilegt húsnæði.
Vinnurými og fundarherbergi
Við ryksugum, þrífum gólf og tæmum ruslafötur. Við þurrkum af borðum og hillum og gætum að gögnum, tölvum og öðrum búnaði.
Kaffistofur og snyrtingar
Við sjáum um þrif á borðum, vöskum, snyrtingum og gólfum, með sérstakri áherslu á fleti sem margir snerta.
Anddyri og móttaka
Við fjarlægjum óhreinindi sem berast inn og höldum þessum fjölförnu svæðum hreinum og snyrtilegum.
Þekking á ólíkum þörfum vinnustaða
Hver atvinnugrein hefur sína sérstöðu. Við tökum mið af opnunartímum, umferð gesta og eðli rekstursins
Skrifstofur
Við sjáum um þrif á vinnurýmum, kaffistofum og fundarherbergjum. Þú færð fagleg þrif og getur einbeitt þér að vinnunni.
Skoða þjónustuna fyrir skrifstofur
Verslanir
Við þrífum verslanir og baksvæði á tímum sem henta starfseminni. Þú tekur á móti viðskiptavinum í hreinni og snyrtilegri verslun..
Skoða þjónustuna
Hótel og gististaðir
Við sjáum um herbergjaþrif og þrif á sameiginlegum rýmum og aðlögum þjónustuna að gestaskiptum og þörfum gististaðarins.
Skoða þjónustuna
Skólar
Við höldum skólum hreinum og snyrtilegum fyrir nemendur, kennara og annað starfsfólk. Ræstingin miðast við notkun húsnæðisins og hreingerningar eru skipulagðar utan skólatíma.
Skoða þjónustuna
Ræstingapakkar sniðnir að þinni starfsemi
Hvort sem þig vantar grunnræstingu eða meiri þrif aðstoðum við þig við að velja lausn. Umfang og tíðni þrifa miðast við húsnæðið og þarfir starfseminnar.
Grunnur
Helstu þrifin í okkar höndum
FYRIR HVERJA?
Fyrirtæki, stofnanir og húsfélög sem þurfa aðstoð við afmörkuð þrif
HVAÐ ER INNIFALIÐ?
Helstu þrif á svæðum samkvæmt samkomulagi.
TÍÐNI
Eftir þörfum húsnæðisins, á umsömdum dögum.
Regluleg
Föst umsjón með ræstingunni.
FYRIR HVERJA?
Fyrirtæki, stofnanir og húsfélög sem þurfa reglulega ræstingu.
HVAÐ ER INNIFALIÐ?
Ræsting á föstum dögum ásamt sértækari þrifum eftir þörfum hvers svæðis.
TÍÐNI
Einn eða fleiri fasta daga í viku.
Dagleg
Hreinn vinnustaður á hverjum degi.
FYRIR HVERJA?
Vinnustaði þar sem álag er mikið og umgangur mikill.
HVAÐ ER INNIFALIÐ?
Dagleg þrif á fjölförnum svæðum og önnur þrif í samræmi við notkun húsnæðisins.
TÍÐNI
Þrif alla umsamda vinnudaga.
Skipulag, þjálfun og eftirfylgni.
Við skipuleggjum ræstinguna eftir þörfum vinnustaðarins, þjálfum starfsfólkið og fylgjum þrifunum eftir.
Skýr ræstingaráætlun
Þú færð verklýsingu þar sem kemur fram hvaða þrif við sjáum um og hvernig þeim er háttað.
Gæðaeftirlit og þjónusta
Við tökum vel á móti ábendingum og ræðum þær strax við starfsfólkið okkar. Gæðastjóri sér um að þeim sé fylgt eftir.
Sveigjanleg þjónusta
Hvort sem fyrirtækið stækkar eða opnunartími breytist aðlögum við þjónustuna að breyttum þörfum.
Þrif í samræmi við þinn
vinnudag
Hvort sem þrifin fara fram á vinnutíma eða eftir að starfsfólk er farið heim, tökum við fullt tillit til starfseminnar. Við fylgjum umsömdum leiðbeiningum um aðgang, lykla og öryggiskerfi og sýnum sveigjanleika vegna funda, gestamóttöku og annarra viðburða.
Góður frágangur auðveldar þrifin. Við fylgjum skýrum leiðbeiningum um hvað má færa og hvað á að láta óhreyft, og gætum fyllstu varúðar við gögn og viðkvæman búnað. Þannig fara dagleg störf ykkar og ræstingin vel saman.
Hreingerningar og sérþrif
Stundum vantar meira en regluleg þrif. Við bjóðum upp á teppahreinsun, gólfbónun, gluggaþvott og hreingerningar. Hjá okkur færðu bæði reglubundna ræstingu og viðbótarþjónustu eftir þörfum.
Almennar hreingerningar
Við sjáum um hreingerningar í húsnæðinu eða á einstökum svæðum þess, til dæmis eftir framkvæmdir.
Skoða almennar hreingerningar
Sérþrif
Við bjóðum upp á gólfbónun og teppa- og húsgagnahreinsun. Hafðu samband ef þig vantar sérþrif með stuttum fyrirvara.
