Forsíða   /   Verslanir

VERSLANIR

Hreinni verslun - betri upplifun

Vel ræst og snyrtileg verslun skapar fallega umgjörð um vörurnar og býður viðskiptavini velkomna. Við hjá BG Ræsta þrífum verslunargólf, baksvæði og aðstöðu starfsfólks. Við skipuleggjum þrifin eftir opnunartíma og umferð um verslunina svo starfsfólkið þitt geti einbeitt sér að því að sinna viðskiptavinum.

Fá tilboð í verslunarþrif

Frá verslunarrými að starfsmannaaðstöðu

Hrein og snyrtileg verslun skapar gott umhverfi fyrir bæði viðskiptavini og starfsfólk. Við getum séð um þrif í allri versluninni eða á völdum svæðum, eftir því hvað hentar.

Inngangar og verslunarrými

Óhreinindi berast auðveldlega inn og sjást fljótt á gólfum. Við ryksugum og þrífum gólf með aðferðum og búnaði sem henta gólfefninu. Við þurrkum einnig af aðgengilegum flötum, til dæmis afgreiðsluborðum.

Aðstaða starfsfólks

Kaffistofur og snyrtingar eru oft mikið notaðar yfir daginn, sérstaklega þar sem unnið er á vöktum. Þar þrífum við borð, vaska, snyrtingar og gólf svo aðstaðan haldist hrein og snyrtileg.

Lager og baksvæði

Við þrífum gólf og ganga á lager og baksvæðum þar sem aðgengi leyfir. Við skipuleggjum þrifin með tilliti til vörumóttöku og annarrar starfsemi.

Þrif sem henta þinni verslun

Hér geturðu borið saman pakkana Grunnur, Regluleg og Dagleg. Við hjálpum þér að velja þjónustu sem hentar versluninni.

Grunnur

Helstu þrifin í versluninni

FYRIR HVERJA?

Verslanir sem vilja afmarkaða þjónustu á völdum svæðum, til dæmis einu sinni í viku.

HVAÐA ÞRIF?

Við þrífum gólf í inngangi og inni í versluninni eða sinnum öðrum grunnþrifum eftir samkomulagi.

TÍÐNI

Við komum á föstum dögum eftir þörfum verslunarinnar.

Regluleg

Þrif á föstum dögum

FYRIR HVERJA?

Verslanir þar sem nægir að þrífa ákveðna daga vikunnar, til dæmis tvisvar eða þrisvar í viku.

HVAÐA ÞRIF?

Við þrífum gólf, innganga, snyrtingar, kaffistofur og baksvæði eftir samkomulagi.

TÍÐNI

Við komum einn eða fleiri fasta daga í viku á tímum sem henta versluninni.

Dagleg

Hreint fyrir opnun

FYRIR HVERJA?

Fjölfarnar verslanir þar sem álag á gólf er mikið og þörf er á daglegum þrifum, fimm til sjö sinnum í viku.

HVAÐA ÞRIF?

Við sjáum um dagleg þrif í versluninni og á öðrum fjölförnum svæðum. Tíðni annarra þrifa er misjöfn og fer eftir tegund verslunar.

TÍÐNI

Á umsömdum opnunardögum. Þrif á dögum þegar verslunin er lokuð eru ákveðin sérstaklega.

Meiri tími til að sinna viðskiptavinum

Þegar við sjáum um reglulegu þrifin fær starfsfólkið meiri tíma fyrir afgreiðslu, vörumóttöku og frágang í versluninni.

Þú getur falið okkur þrif á allri versluninni eða aðeins ákveðnum svæðum.Starfsfólkið sér um að selja vörurnar og BG Ræsta sér um að halda versluninni hreinni.

Þrif á tímum sem henta versluninni

Oft er best að gólfþvottur og umfangsmeiri þrif fari fram fyrir opnun eða eftir lokun. Þá er betra aðgengi að versluninni og minni truflun á afgreiðslu.Þá er betra aðgengi að versluninni og minni truflun á afgreiðslu.

Þegar við þrífum á opnunartíma tökum við tillit til viðskiptavina og vinnu starfsfólks og miðum verkin við aðgengi hverju sinni.

Á útsölum, fyrir jól eða á öðrum annatímum geturðu óskað eftir meiri þrifum.

Hreingerningar og sérþrif

Eftir málun, breytingar á innréttingum eða flutning í nýtt húsnæði þarf oft að þrífa verslunina vandlega áður en hún opnar. Hafðu samband ef þig vantar þessi þrif með skömmum fyrirvara.

Almennar hreingerningar

Við þrífum verslunina og bakrýmin vandlega eftir framkvæmdir eða áður en hún opnar aftur.

Nánar um þjónustuna
Sérþrif

Gluggaþvottur, gólfhreinsun og bónun ásamt teppahreinsun eftir þörfum verslunarinnar.

Nánar um þjónustuna

Fáðu tilboð í verslunarþrif

Segðu okkur hvar verslunin er staðsett, hvenær hún er opin og hvaða svæði þú vilt láta þrífa. Þú færð tilboð sem tekur mið af þörfum verslunarinnar.