Forsíða   /   Skólar og stofnanir

SKÓLAR OG STOFNANIR

Ræstingar fyrir skóla

Við hjá BG Ræsta sjáum um ræstingar í skólum. Við þrífum meðal annars kennslustofur, matsali og snyrtingar. Þrifin eru skipulögð með tilliti til starfseminnar, notkunar húsnæðisins og þarfa nemenda, starfsfólks og annarra sem nota húsnæðið.

Fá tilboð í þrif

Þrif í ólíkum rýmum

Anddyri og gangar

Ýmis óhreinindi berast inn yfir daginn. Við sjáum um öll gólfþrif og þrífum aðra fleti eftir þörfum.

Snyrtingar og mötuneyti

Við þrífum snyrtingar, vaska, borð og gólf. Í mötuneytum skipuleggjum við þrifin með tilliti til matmálstíma og notkunar svæðisins.

Kennslustofur

Við þrífum gólf, þurrkum af borðum og töflum og tæmum ruslafötur. Við vinnum af aðgát í kringum námsgögn, tæki og annan búnað.

Þrif sem aðlagast starfseminni

Frístundastarf og viðburðir halda oft áfram eftir að kennslu lýkur. Við tökum mið af dagskránni og skipuleggjum þrif þegar rýmin eru laus eða samhliða starfseminni, þar sem því verður við komið.

Þrif eftir þörfum starfseminnar

Grunnur

Grunnþrif á völdum svæðum

FYRIR HVERJA?

Skólar sem þurfa aðstoð við hluta ræstingarinnar.

HVAÐA ÞRIF?

Gólfþrif, afþurrkun og tæming ruslafata í þeim rýmum sem þú velur.

TÍÐNI

Á umsömdum dögum, með tilliti til notkunar rýmanna og dagskrár staðarins.

Regluleg

Föst þrif á umsömdum vikudögum

FYRIR HVERJA?

Skólar með rými sem þurfa regluleg þrif en ekki daglega.

HVAÐA ÞRIF?

Gólfþrif og afþurrkun í umsömdum rýmum ásamt þrifum á snyrtingum og sameiginlegri aðstöðu.

TÍÐNI

Einn eða fleiri fasta daga í viku, eftir notkun rýmanna.

Dagleg

Dagleg þrif á álagssvæðum

FYRIR HVERJA?

Skólar þar sem kennsla og starfsemi krefjast daglegrar ræstingar.

HVAÐA ÞRIF?

Þrif á umsömdum svæðum, svo sem kennslustofum, snyrtingum, matsölum og göngum.

TÍÐNI

Daglega á umsömdum kennslu- og starfsdögum. Tíðni þrifa í fríum er ákveðin sérstaklega.

Yfirsýn yfir ræstingu húsnæðisins

Þegar ljóst er hvaða þrif þarf að sinna á hverju svæði og hversu oft verður auðveldara að halda utan um ræstinguna. Snyrtingar geta til dæmis þurft dagleg þrif en minna notuð rými þurfa þrif sjaldnar. Einnig er tekið mið af fríum og lokunum.

Skólafrí gefa svigrúm til ítarlegri sérþrifa

Þegar húsnæðið er minna notað er auðveldara að komast að gólfum og svæðum sem dagleg þrif ná ekki til.

Hreingerningar

Við tökum að okkur ítarleg þrif í skólafríum, eftir framkvæmdir eða breytingar á húsnæði.  Þú getur pantað þessi þrif með skömmum fyrirvara.

Nánar um þjónustuna
Sérþrif

Við sjáum um gólfhreinsun og bónun, gluggaþvott og hreinsun á teppum og húsgögnum. Verkin eru skipulögð með tilliti til aðgengis.

Nánar um þjónustuna

Fáðu tilboð í ræstingu húsnæðisins

Sendu okkur stutta lýsingu á húsnæðinu og þeim rýmum sem þarf að þrífa. Við aðstoðum þig við að meta umfang þrifanna og gerum tilboð sem tekur mið af húsnæðinu og þörfum starfseminnar.