Forsíða / Hótel og gististaðir
HÓTEL OG GISTISTAÐIR
Þjónusta sem gestirnir
þínir taka eftir
Við hjá BG Ræsta sjáum um þrif á herbergjum og sameiginlegum rýmum á hótelum og öðrum gististöðum. Við skipuleggjum þrifin og tökum mið af gestaskiptum, verklagi og þörfum hvers staðar. Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð og góð samskipti.
Fá tilboð í hótelþrifHerbergisþrif
Við sinnum þrifum bæði við gestaskipti og meðan á dvöl gesta stendur. Umfang og tíðni þrifa eru ákveðin í samráði við gististaðinn og unnið er eftir fyrirframákveðinni verkáætlun.
Við gestaskipti
Eftir brottför gesta þrífum við herbergið og undirbúum það fyrir næstu gesti. Við þrífum gólf og baðherbergi, þurrkum af yfirborðum, tæmum ruslafötur og sinnum öðrum frágangi.
Meðan á dvöl stendur
Við göngum varlega um persónulega muni gesta og tökum tillit til óska þeirra. Þrifin fara fram daglega eða sjaldnar, eftir því hvaða þjónustu gististaðurinn býður upp á.
Baðherbergi
Við þrífum vaska, sturtur, salerni og spegla ásamt hurðarhúnum og öðrum flötum sem oft eru snertir. Við veljum hreinsiefni sem henta yfirborðum og innréttingum.
Meira svigrúm til að sinna gestunum
Þegar stutt er á milli brottfarar og innritunar skiptir góð yfirsýn máli. Við vinnum í samráði við starfsfólk gististaðarins og upplýsum móttökuna um stöðu herbergisþrifa. Það auðveldar starfsfólkinu að undirbúa komu gesta og svara fyrirspurnum þeirra.
Við getum séð um þrif á herbergjum, sameiginlegum rýmum og veitingarýmum eftir þörfum gististaðarins. Einnig getum við tekið að okkur önnur þrif til að létta undir með starfsfólkinu.
Hreingerningar og sérþrif
Þegar færri gestir dvelja á staðnum skapast tilvalið tækifæri til að hreinsa teppi og húsgögn eða taka herbergi og sameiginleg rými rækilega í gegn. Við skipuleggjum sérþrifin með þér og tökum mið af því hvenær herbergin þurfa að vera tilbúin fyrir næstu gesti.
Hreingerningar
Ítarleg þrif á herbergjum og sameiginlegum svæðum, til dæmis eftir breytingar á húsnæði eða áður en nýtt tímabil hefst.
Kynna mér þjónustuna
Sérþrif
Hreinsun á teppum og bólstruðum húsgögnum, gluggaþvottur og þrif gólfa sem þarfnast sérstakrar meðferðar.
